Námskeið

MK Íslenska fyrir erl. starfsm. á hótelum og veitinga
MK Þjónusta og samskipti á veitingahúsum
MK Matvælaöryggi
MK Þjónusta og sala í bakaríum.
MK Þjónusta og samskipti á veitingahúsum
MK Þrifaáætlun og samskipti
MK Slow Food hugmyndafræðin
MK Nýjungar í kjötiðnaði - vinnustofa
MK Smurbrauð
MK Excel í eldhúsi og veitingahúsum
MK Matreiðsla á grænmetisfæði
MK Menningarheimar
MK Hollari matarvenjur, hollt og hagkvæmt
MK Kransakökugerð
Markmið Sæmundar Fróða

Markmið Sæmundar fróða er að efla símenntun í hótel- og matvælagreinum og skyldum greinum þ.m.t. ferðaþjónustu, auka samstarf atvinnulífs og skóla til að auka samkeppnishæfni atvinnulífs og bjóða einstaklingum hagnýta og fræðandi fagþekkingu á sviði hótel- og matvælagreina og skyldra greina. Einnig að veita ráðgjöf til fyrirtækja um símenntun og rekstur á sviði hótel- og matvælagreina og skyldum greinum þ.m.t. ferðaþjónustu og vinna að öðrum skilgreindum verkefnum sem eigendur eru sammála um að fela Sæmundi fróða.

Í þessu skyni er rekstarfélaginu ætlað eftirfarandi:
  • bjóða fram námskeið á sviði hótel- og matvælagreina og skyldum greinum og miðla því til almennings og atvinnulífs. Þar er átt við fagmenntun, starfsmenntun og óformlega menntun, tómstundanám o.s.frv.
  • bjóða upp á nám á framhaldsskólastigi í hótel- og matvælagreinum
  • vinna að skilgreindum verkefnum s.s. samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og aðila vinnumarkaðarins til þess að þjóna markaðnum á sem bestan hátt á sviði hótel og matvælagreina
  • fylgjast með og nýta bestu fáanlegu kennslutækni og leggja áherslu á fjarkennslu, kennslu á vettvangi og úti í fyrirtækjum eins og kostur er
  • selja ráðgjafaþjónustu til fyrirtækja um símenntun í samstarfi við fræðslustofnanir, atvinnuþróunarfélög og/eða aðrar símenntunarstöðvar
  • taka þátt í að kynna náms- og starfsgreinar í hótel og matvælagreinum og skyldum greinum
  • taka að sér skilgreind verkefni t.a.m. að skipuleggja nemakeppnir og fl.
 

sæmundur fróði © allur réttur áskilinn 2007 | sbs vefsmíði